| By Halli,
on 14-11-2007 14:04
|
Við fórum í það að gera smá framkvæmdir á íbúðinni okkar um daginn. Ákváðum að ráðast á yndislega gula eldhúsið okkar. Ætlunin er að reyna lífga aðeins upp á það og taka út gula litinn. Við vildum þó ekki fara í neinar dýrar framkvæmdir þar sem við eru alltaf að spá og spekúlera með að fá okkur stærra húsnæði. Ákváðum við að reyna mála yfir gulu fletina í skápurðunum og pússa upp og lakka yfir viðinn. Ég verð að viðurkenna að það hefur gengið frekar hægt en sem komið er. Búið er að taka niður hluta af efriskápahurðunum og af nokkrum skúffum. Við erum a.m.k. ekki komin það langt að við séum búin að ákveða hvaða lit við viljum á hurðirnar J. Reyndar höfum við verið að draga það aðeins þar sem liturinn á hurðunum fer dálítið eftir hvernig borðplötu við ætlum að fá okkur (já, við ætlum bara að vera grand á þessu og skipta líka um gulu borðplötuna okkar). Í gær gerðist nokkuð merkilegt sérstaklega hjá svona fólki eins og okkur sem er haldið ákvörðunarfælni á háu stigi. Við fórum og keyptum nýjan vask, ný blöndunartæki og nýjar borðplötur. Þá er okkur ekkert að vandbúnaði með að klára þetta sem fyrst. Það er a.m.k. stefnt að því að vera búin fyrir jól J. Veit einhver hvar hægt er að finna gott úrval af skápahöldum?
Last update : 14-11-2007 14:05
|
|
|
| Users' Comments |
|
Average user rating
|
|
Tjáðu þig
|
allegra print and imaging kentucky
By: Robert () on 29-08-2010 01:58