| By Halli,
on 09-11-2007 11:29
|
Þegar við vöknuðum í gærmorgun þá mætti okkur lítill draugur á ganginum. Hildur Sif var orðin veik og var alveg hvít í framan. Held ég hafi sjaldan séð hana svona föla. Við vorum því heima. Það er líka alltaf greinilegt þegar Hildur Sif er veik því þá er hún "róleg" þ.e. hún lá bara kyrr í rúminu undir sæng. Stuttu seinna kom í ljós að þetta var gubbupest sem hún var með. Sem betur fer þá virtist hún líða fljótt hjá því um hádegið var hún orðin mun hressari og ekki eins "róleg" lengur. Við skulum svo bara vona að þetta haldi ekki áfram á næstu fjölskyldumeðlimi því þessi helgi er þéttpökkuð. Langt síðan við höfum haft svona þéttpakkaða helgi, matarboð sem Öddu er boðið í, þrjú afmæli (ásamt innkaupum), foreldrafundur hjá leikskólanum hennar Hildar Sif og íþróttaskólinn. Ætli það verði ekki bara afslappandi að fara í vinnuna aftur á mánudaginn .
Last update : 09-11-2007 11:30
|
|
|
| Users' Comments |
|
Average user rating
|
|
Tjáðu þig
|
how does imitrex treat migraines
By: Jim () on 29-08-2010 02:53