| By Halli,
on 07-11-2007 12:14
|
Við ákváðum að fara með Arnar Freyr til eyrnasérfræðings í síðustu viku þar sem okkur fannst hann vera búin að fá nokkuð oft í eyrun. Sérfræðingurinn rétt kíkti á hann og veikindasöguna hann og sagði strax að hann þyrfti að fá rör í eyrun. Það var því pantaður tími fyrir röraísetningu og nefkirtlatöku. Við fórum svo með hann á mánudaginn í aðgerðina. Þetta var mjög fljótgert, vorum innan við klukkutíma frá því að mæta á staðinn þangað til við vorum lögð af stað aftur heim. Greyið var voða ringlaður eftir svæfinguna og aðgerðina og grét nokkuð. Við feðgarnir lögðum okkur þó saman þegar heim var komið og náði hann að jafna sig nokkuð. Hann var þó frekar slappur það sem eftir lifði dagsins og kom varla fram brossvipur hjá honum. Gærdagurinn var betri og virtist hann allur vera hressast. Í dag fór hann svo aftur til dagmömmunnar og vonum við að hann sé þá að fullu búinn að ná sér. Vonandi skila þetta sér í því að hann fær síður þessar pestir og eyrnabólgur. Eins höfum við verið að velta því fyrir okkur hvort þetta hafi verið að hafa áhrif á talþroska hann en hann er ennþá lítið sem ekkert farinn að segja ákveðin orð. Svona eyrnavesen getur orsakað það að hann heyri minna og það getur haft áhrif á tal. Það verður forvitnilegt að fylgjast með því hvernig honum fer fram á næstu vikum. Af öðru þá er drengurinn farinn að þramma um eins og herforingi. Kýs það frekar en skríða. Eins er hann alltaf að klifra um allt og upp á alla stóla. Í síðustu viku fór hann inn í eldhús opnaði skápinn með morgunkorninu, fór með dunkinn (sem var fullur og því nokkur þyngd) að eldhúsborðinu, klifraðu upp á eldhússtól með dunkinn og skellti honum upp á borðið. Minn maður ætlaði sér sko að fá morgunkort. Hann er einnig farinn að geta opnað allar hurðir þannig þetta farið verða heljarinnar eltingarleikur að fylgjast með honum. Hildur Sif er hress að vanda. Maður verður alltaf meir og meir var við hversu mikið hún er að þroskast andlega. Farin að pæla meira í hlutum og spyrjast fyrir. það er greinilegt að leikskólakennararnir hennar eru af yngri kynslóðinni því hún kemur stundum með skemmtilega frasa s.s. Rock On og setur vísifingur og litlafingur upp og svo það nýjast er O My God.
Last update : 09-11-2007 11:33
|
fat crestor cells energy hydroperoxides
By: Irene () on 28-08-2010 22:06