depill.net

sunnudagur, 05 september 2010

Heim arrow Blog
sunnudagur, 05 september 2010
Ašalmatsešill
Heim
Fréttir
Blog
Hlekkir
Leit
Myndir
Blašrirš įn mynda
Glešileg jól og glešilegt nżtt įr

By Halli, on 01-01-2008 12:04

Gleðilega jól og gleðilegt nýtt ár.

 

Jólakveðja

 

Last update: 01-01-2008 12:05

Hvaš segir fólkiš (1938)
 
Mynd

By Halli, on 04-12-2007 23:12

Fannst orðið vanta einhverja mynd af grísunum inn á nýju síðuna.  Hérna eru þau að horfa á uppáhaldið, Latibær.  Þið skuluð ekki láta blekkjast af því að þau sitji alltaf svona saman að horfa.  Arnar Freyr stendur vanalega um 10cm frá sjónvarpinu og Hildur Sif er ýmist standandi upp í sófa eða standandi uppá borði Laughing

 

 

Last update: 04-12-2007 23:19

Hvaš segir fólkiš (1251)
 
Framkvęmdir

By Halli, on 14-11-2007 14:04


 Við fórum í það að gera smá framkvæmdir á íbúðinni okkar um daginn.  Ákváðum að ráðast á yndislega gula eldhúsið okkar.  Ætlunin er að reyna lífga aðeins upp á það og taka út gula litinn.  Við vildum þó ekki fara í neinar dýrar framkvæmdir þar sem við eru alltaf að spá og spekúlera með að fá okkur stærra húsnæði.  Ákváðum við að reyna mála yfir gulu fletina í skápurðunum og pússa upp og lakka yfir viðinn.  Ég verð að viðurkenna að það hefur gengið frekar hægt en sem komið er.  Búið  er að taka niður hluta af efriskápahurðunum og af nokkrum skúffum.  Við erum a.m.k. ekki komin það langt að við séum búin að ákveða hvaða lit við viljum á hurðirnar J.  Reyndar höfum við verið að draga það aðeins þar sem liturinn á hurðunum fer dálítið eftir hvernig borðplötu við ætlum að fá okkur (já, við ætlum bara að vera grand á þessu og skipta líka um gulu borðplötuna okkar).  Í gær gerðist nokkuð merkilegt sérstaklega hjá svona fólki eins og okkur sem er haldið ákvörðunarfælni á háu stigi.  Við fórum og keyptum nýjan vask, ný blöndunartæki og nýjar borðplötur.  Þá er okkur ekkert að vandbúnaði með að klára þetta sem fyrst.  Það er a.m.k. stefnt að því að vera búin fyrir jól J

Veit einhver hvar hægt er að finna gott úrval af skápahöldum?


Last update: 14-11-2007 14:05

Hvaš segir fólkiš (2730)
 
Lķtill draugur

By Halli, on 09-11-2007 11:29

Þegar við vöknuðum í gærmorgun þá mætti okkur lítill draugur á ganginum.  Hildur Sif var orðin veik og var alveg hvít í framan.  Held ég hafi sjaldan séð hana svona föla.  Við vorum því heima.  Það er líka alltaf greinilegt þegar Hildur Sif er veik því þá er hún "róleg" þ.e. hún lá bara kyrr í rúminu undir sæng. 

Stuttu seinna kom í ljós að þetta var gubbupest sem hún var með.  Sem betur fer þá virtist hún líða fljótt hjá því um hádegið var hún orðin mun hressari og ekki eins "róleg" lengur.  Við skulum svo bara vona að þetta haldi ekki áfram á næstu fjölskyldumeðlimi því þessi helgi er þéttpökkuð. 

Langt síðan við höfum haft svona þéttpakkaða helgi,  matarboð sem Öddu er boðið í, þrjú afmæli (ásamt innkaupum), foreldrafundur hjá leikskólanum hennar Hildar Sif og íþróttaskólinn. 

Ætli það verði ekki bara afslappandi að fara í vinnuna aftur á mánudaginn Smile.

Last update: 09-11-2007 11:30

Hvaš segir fólkiš (1879)
 
ó mę got

By Halli, on 07-11-2007 12:14

Við ákváðum að fara með Arnar Freyr til eyrnasérfræðings í síðustu viku þar sem okkur fannst hann vera búin að fá nokkuð oft í eyrun.  Sérfræðingurinn rétt kíkti á hann og veikindasöguna hann og sagði strax að hann þyrfti að fá rör í eyrun.  Það var því pantaður tími fyrir röraísetningu og nefkirtlatöku.  Við fórum svo með hann á mánudaginn í aðgerðina.  Þetta var mjög fljótgert, vorum innan við klukkutíma frá því að mæta á staðinn þangað til við vorum lögð af stað aftur heim.  Greyið var voða ringlaður eftir svæfinguna og aðgerðina og grét nokkuð.  Við feðgarnir lögðum okkur þó saman þegar heim var komið og náði hann að jafna sig nokkuð.  Hann var þó frekar slappur það sem eftir lifði dagsins og kom varla fram brossvipur hjá honum.  Gærdagurinn var betri og virtist hann allur vera hressast.  Í dag fór hann svo aftur til dagmömmunnar og vonum við að hann sé þá að fullu búinn að ná sér. 

 Vonandi skila þetta sér í því að hann fær síður þessar pestir og eyrnabólgur.  Eins höfum við verið að velta því fyrir okkur hvort þetta hafi verið að  hafa áhrif á talþroska hann en hann er ennþá lítið sem ekkert farinn að segja ákveðin orð.  Svona eyrnavesen getur orsakað það að hann heyri minna og það getur haft áhrif á tal.  Það verður forvitnilegt að fylgjast með því hvernig honum fer fram á næstu vikum. 

Af öðru þá er drengurinn farinn að þramma um eins og herforingi.  Kýs það frekar en skríða.  Eins er hann alltaf að klifra um allt og upp á alla stóla.  Í síðustu viku fór hann inn í eldhús opnaði skápinn með morgunkorninu, fór með dunkinn (sem var fullur og því nokkur þyngd) að eldhúsborðinu, klifraðu upp á eldhússtól með dunkinn og skellti honum upp á borðið.  Minn maður ætlaði sér sko að fá morgunkort.

Hann er einnig farinn að geta opnað allar hurðir þannig þetta farið verða heljarinnar eltingarleikur að fylgjast með honum.

Hildur Sif er hress að vanda.  Maður verður alltaf meir og meir var við hversu mikið hún er að þroskast andlega.  Farin að pæla meira í hlutum og spyrjast fyrir.  það er greinilegt að leikskólakennararnir hennar eru af yngri kynslóðinni því hún kemur stundum með skemmtilega frasa s.s. Rock On og setur vísifingur og litlafingur upp og svo það nýjast er O My God. 

Last update: 09-11-2007 11:33

Hvaš segir fólkiš (2310)
 
Allt ķ vinnslu

By Halli, on 01-11-2007 14:29

Síðan er búin að vera í lamasessi undanfarið þar sem ég hef verið að vinna í því að flytja hana yfir á annan hýsingaraðila.  Var orðinn þreyttur á servernum heima sem var sífellt að klikka og orðinn almennt frekar gamall og lúinn.  Síðan er því komin inn á erlendan hýsingaraðila sem ég vona að verði stöðugri. 

Last update: 09-11-2007 11:33

Hvaš segir fólkiš (774)
 
Meira...
© 2010 depill.net
Joomla! is Free Software released under the GNU/GPL License.